

ESSENTIAL CLEANSING MILK
200 ml brúsi. Andlitsmjólk sem hentar öllum húðgerðum. Hún er silkimjúk og heinsar vel án þess að erta og fjarlægir óhreinindi og farða og endurheimtar náttúrulegan ljóma húðarinnar. Gefur góða hreinsun og hentugur fyrir blandaðar húðgerðir sem og þurra.
Notkun:
Mjólkin er sett í lófa og nuddað á andlit með fingrum með hringlaga hreyfingum og fara tvær umferðir. Fyrri umferð að fjarlægja farða og seinni umferð að hreinsa óhreinindi húðar. Hreinsað svo vel af með hreinum þvottarpoka.

ESSENTIAL TONER
200 ml brúsi. Andlitsvatn fyrir allar húðgerðir með mýkjandi eiginleikum og hreinsar leifar af þeim hreinsiefnum sem áður voru notaðar og undirbýr húðina að taka á móti virkum efnum. Eykur og viðheldur frumuendurnýjun.
Notkun:
Andlitsvatnið er sett í bómull og strokið vel yfir andlit kvöld og morgna eftir yfirborðshreinsun eða til að fríska húðina.

ESSENTIAL FACE WASH
150 ml túpa. Mjúkur og freyðandi hreinsir sem fjarlægir öll óhreinindi og gefur ljóma. Hentar sérstaklega fyrir unga húð, venjulega til blandaða húð sem er ekki viðvkæm eða of þurr. Sápan angar af [comfort zone] ilminum.
Notkun:
Sápan er sett í lófa og nuddað á andlit með fingrum í hringlaga hreyfingum og fara tvær umferðir. Fyrri umferð að fjarlægja farða og seinni umferð að hreinsa óhreinindi húðar. Hreinsað vel af með hreinum þvottarpoka.

ESSENTIAL SCRUB
60 ml túpa. Kornaskrúbb með mjúkri áferð fyrir allar húðgerðir. Kornin eru í 3 mismunandi stærðum og eru unnin úr náttúrulegum kísli. Angar af [comfort zone] ilminum.
Notkun:
Skrúbburinn er settur í lófa og unninn upp með vatni og nuddað vel á allt andlitið með fingrum 2x í viku eftir yfirborðshreinsun.
Hreinsað af með hreinum þvottarpoka.

ESSENTIAL MICHELLAR WATER
200 ml brúsi. Fjölvirkt vatn til þess að hreinsa andlit, augu og varir.
Fjarlægir förðun, hreinsar svitaholur og yfirborð húðar án þess að þurfa að skola. Þessi er frábær fyrir þá sem treysta sér engan vegin í frekari hreinsun, þá er þessi handhægur.
Notkun:
Vökvinn er settur í bómull og strokið yfir andlit kvölds og morgna.

ESSENTIAL PEELING
60 ml túpa. Hreinsimaski sem losar húðina við óhreinindi, dauðar húðfrumur og umfram sebum með fíngerðri ensímvirkni. Mýkir, sléttir og gefur húðinni ljóma.
Notkun:
Borið á hreina húð með hringlaga hreyfingum. Efninu leyft að liggja á í 10 mín og svo þvegið vel af með hreinum þvottarpoka.

SUBLIME SKIN CREAM
60 ml glerkrukka. Sublime Skin bætir áferð húðarinnar, gefur henni fyllingu, stinningu, ljóma og dregur úr línum og hrukkum. Mjög öflugt fyrir húð sem er farin að finna fyrir hormónabreytingum, venjulega og þurra húð. Þéttandi og lyftandi sem gefur fyllingu og er með sjáanlega virkni.
Notkun: Notist kvöld og morgna fyrir 45 + eða
1x á dag fyrir 35+

SUBLIME SKIN EYE PATCH
Augnskífur með rakageli sem sýna samstundis jákvæð áhrif á þreytt augu. Þríþætt virkni: dregur úr þrota, baugum og hrukkum með peptíð complexi, crysin og hispertíni. 1 bréf fyrir eitt skipti,
Setjið púðana undir augun á hreina, þurra húð og leyfið þeim að vera þar í 20-120 mín. Gaman að bæta þessu við með gjafabréfi.

SUBLIME SKIN RICH
60 ml glerkrukka. Sublime Skin Rich bætir áferð húðarinnar, gefur henni fyllingu, stinningu, ljóma og dregur úr línum og hrukkum. Mjög öflugt fyrir húð sem er farin að finna fyrir hormónabreytingum, venjulega og þurra húð. Þéttandi og lyftandi sem gefur fyllingu og er með sjáanlega virkni.
Notkun: Notist kvöld og morgna fyrir 45 + eða
1x á dag fyrir 35+

SUBLIME SKIN PEEL PAD
Skífur með ávaxtasýrum og c-vítamíni sem ýta undir endurnýjun húðarinnar, fjarlægja dauðar húðfrumur, auka ljóma og jafna húðlitinn. 1 pads fyrir eiitt skipti
Notkun:
Notið 1 skífu og nuddið henni vel á húðina. Leggið áherslu á gróf svæði og farið varlega á viðkvæma staði. Mjög gott að setja serum og krem eftir meðferð eða maska.

SUBLIME SKIN INTENSIVE SERUM
30 ml pumpuglas.
Þéttandi serum sem vinnur gegn frumuöldrun. Mýkir, þéttir og stinnir húðina sjáanlega. Hentar fyrir allar húðgerðir.
Notið á morgnanna og kvöldin. Má nota eitt og sér fyrir feitari/blandaðar húðgerðir. Finnur mjög mikið fyrir virkni serumsins. Gott fyrir 40+

SUBLIME SKIN LIFT MASK
60ml glerkrukka. Þéttandi og lyftandi krem maski sem gefur
sjáanlega virkni. Gefur húðinni fyllingu, stinningu, ljóma og dregur úr línum og hrukkum. Mjög öflugt og hefur þéttandi og lyftandi sem gefur fyllingu og er með sjáanlega virkni.
Notkun: Notist 2 - 3x í viku eftir aldri eftir yfirborðshreinsun og djúðhreinsun. Maskann má einnig nota sem næturmaska.

RENIGHT CREAM
60ml krukka. Einstök nærandi, andoxandi og uppbyggjandi næturmeðferð. Kremið er alger vítamín og næringar sprengja fyrir húðina, þú vaknar endurnærð og frískleg.
Notkun:
Borið á hreina húð að kveldi og látið vera yfir nótt.

RENIGHT OIL
30ml. Vítamín olía sem er einstaklega nærandi, andoxandi og uppbyggjandi olía og dekrar við húð þína á meðan þú sefur. . Olían er alger vítamín og næringar sprengja fyrir húðina. Olíuna er hægt að nota eina og sér eða undir annað krem.
Notkun:
Borið á hreina húð að kveldi eitt og sér eða undir annað krem.

RENIGHT MASK
60ml. Næturmaski fyrir flestar húðgerðir. Er nærandi vítamínbúst með róandi og slakandi ilmi.
Er frábært vítamínbúst fyrir húðina. Eykur og viðheldur frumuendurnýjun.
Notkun:
Maskinn er borinn á hreina húð, eftir yfirborðshreinsun og djúphreinsun að kveldi og leyft að liggja yfir nótt.

HYDRAMEMORY CREAM GEL
60 ml krukka. Þetta er létt gelkennt rakakrem með einstaka “sorbet” áferð. og gefur húðinni góða rakafyllingu.
Notkun:
Notist kvölds og morgna eða samhliða örðu kremi til að halda rakajafnvæginu í skefjum.

HYDRAMEMORY CREAM
60 ml krukka. Þétt kremkennt nærandi rakakrem með einstaka “sorbet” áferð fyrir mjög þurra húð. Gefur húðinni þéttleika.
Notkun:
Notist kvölds og morgna eða samhliða örðu kremi til að halda rakajafnvæginu í skefjum.

HYDRAMEMORY MASK
60ml túpa. Rakamaski fyrir allar húðgerðir sem gefur samstundis virkni. Gefur fyllingu og hefur sjáanlega virkni. Má einnig nota sem næturmaska eða næturkrem.
Notkun:
Maskinn er settur á hreina húð, eftir hreinsun og djúphreinsun. Má liggja á frá 3 mín yfir í heila nótt.

ACTIVE PURENESS GEL
200 ml flaska. Sápuhreinsir með bakteríudrepandi og sótthreinsandi eiginleikum. Mjög virkur hreinsir fyrir feita húð.
Notkun:
Sápan er sett í lófa með smá vatni og nuddað á andlit með fingrum í hringlaga hreyfingum og tvær umferðir. Fyrri umferð að fjarlægja farða og seinni umferð að hreinsar óhreinindi húðar.
Hreinsað vel af með hreinum þvottarpoka.

ACTIVE PURENESS CORRECTOR
15 ml túpa. Gel sem er notað staðbundið á bólur og frunsur. Bakteríudrepandi og sótthreinsandi og dregur úr bólgum og sýkingum.
Notkun:
Berið beint á bólur eða frunsur og endurtakið yfir daginn ef þess þarf. Forðist augnsvæði.

ACTIVE PURENESS TONER
200 ml brúsi. Andlitsvatn fyrir feita/blandaða húð með hreinsandi og róandi eiginleikum. Hefur sýrustillandi áhrif og slípandi eiginleika sem hjálpar feitri húð til að ná jafnvægi. Eykur og viðheldur frumuendurnýjun.
Notkun:
Andlitsvatnið er sett í bómull og strokið vel yfir andlit kvöld og morgna eftir yfirborðshreinsun eða aðra meðferð.

ACTIVE PURENESS MASK
60 ml túpa. Kremkenndur maski með grænum og hvítum leir. Hefur bakteríudrepandi og sótthreinsandi virkni.
Notkun:
Maskinn er borinn á hreina húð eftir yfitborðshreinsun og djúphreinsun á vandamála svæði og ef hann er borinn á allt andlitið þá má hann liggja á húð í 10 mín en það má bletta þunnt lag á bólur yfir nótt.

ACTIVE PURENESS FLUID
30 ml túpa. 24 stunda krem sem hentar vel fyrir feita húð og aðra vandamála húð sem þjáist af bóluvandamálum. Kremið jafnar fituframleiðslu og mattar húðina. Inniheldur C vítamín og er mjög virkt. Samhliða þessu er gott að nota rakakrem með ef húðin er þurr eða Pureness Corrector ef mjög feit.
Notkun:
Kremð er borið á húð samhliða öðru kremi á vandamálasvæði eða á allt andlitið.

REMEDY CREAM TO OIL
150 ml túpa. Mjög mildur yfirborðshreinsir fyrir viðkæma húð. Tilvalið einnig fyrir þurra húð og í köldu og þurru loftslag.
Notkun:
Mjólkin er sett í lófa og nuddað létt á andlit með fingrum í hringlaga hreyfingum og tvær umferðir. Fyrri umferð fjarlægir farða og seinni umferðin hreinsar óhreinindi húðar. Hreinsað af með hreinum þvottarpoka.

REMEDY CREAM
60 ml. Létt, sefandi og rakagefandi krem sem er ekki olíukennt. Styrkir varnir húðarinna. Fyrir húð sem er viðkvæm, ert eða gjörn á að verða rauð.
Notkunarleiðbeiningar:
Berið á hreina húð, andlit og háls kvölds og morgna.

REMEDY TONER
200 ml brúsi. Andlitsvatn fyrir mjög viðkvæma húð með róandi og sefandi eiginleikum. Hreinsar leifar af þeim hreinsiefnum sem áður voru notaðar og undirbýr húðina að taka á móti virkum efnum.
Notkun:
Andlitsvatnið er sett í bómull og strokið vel yfir andlit kvöld og morgna eftir yfirborðshreinsun eða aðra meðferð. Einnig má úða andlitsvatnið yfir andlitið með því að spreyja til að róa húðina.

REMEDY DEFENCE CREAM
Þétt, nærandi krem sem verndar húðina mjög mikið fyrir utanaðkomandi áreiti.
Dregur úr roða og ertingu og styrkir húðina gegn áreiti.
Notkun:
Notist kvölds og morgna eða á viðkvæm svæði eftir þörfum.

TRANQUILLITY BODY LOTION
Silkimjúkt, létt og nærandi líkamskrem með dásamlegri blöndu af ilmkjarnaolíum sem draga úr stressi og streitu. Dásamleg leið til að slaka á í lok dags.
Tranquillity ilmurinn er hjartað í [comfort zone]. Ilmurinn dregur úr streitu og kvíða, bætir svefngæði og veitir slökun á líkama og sál.

TRANQUILLITY ROOM SPRAY
200ml spreyglerflaska. Tranquillity ilmurinn er hjartað í [comfort zone]. Ilmurinn dregur úr streitu og kvíða, bætir svefngæði og veitir slökun á líkama og sál.
Spreyja yfir sængina til að ná betri svefngæði og eins ef þú skapa slakandi stemningu.

TRANQUILLITY CANDLE
Tranquillity ilmurinn er hjartað í [comfort zone]. Ilmurinn dregur úr streitu og kvíða, bætir svefngæði og veitir slökun á líkama og sál.
55 tímar +